Útskriftarferð jólin 2007

29.07.2008 16:41:44 / trip07

Afgangur til góðs???

Sælt veri fólkið!! 

Takk fyrir frábæra ferð!!! Ekki seinna vænna en að þakka fyrir hana núna, svona hálfu ári seinna. ;)

En málið er að við eigum örlítinn aur eftir sem að við höfðum hugsað okkur að nýta á einhvern hátt. Þar sem það tekur svoooo langan tíma að millifæra þá kemur það ekki til greina! Enda einungis um tæpan 1500 kall á mann að ræða. Það hafa ýmsar hugmyndir komið í ljós varðandi ráðstöfun, en okkur finnst ein standa uppúr. 

Þannig er mál með vexti að það er ein lítil hetja að berjast fyrir heilsu sinni og lífi þessa dagana, en hún heitir Þórhildur Nótt Mýrdal og er 3ja mánaða. Fyrir mánuði síðan greindist hún með SMA en það er alvarlegur taugahrörnunarsjúkdómur sem lýsir sér með skertum vöðvastyrk þess sem er haldinn sjúkdómnum. Nýlega þá var opnaður styrktarreikningur af aðstandendum Þórhildar og þar geta allir lagt inn frjáls framlög. 

Þar sem að þetta er ekki stór upphæð fyrir hvert og eitt okkar þá getur þetta skipt miklu máli fyrir fjölskyldu Þórhildar. 

Allavega, okkur fannst þetta góð hugmynd þar sem að peningurinn nýtist best á góðan hátt. En ef þið hafið aðrar uppástungur endilega látiði í ykkur heyra. Ef að flestir samþykkja þetta fyrir næsta þriðjudag þá verður gengið í gegn með þetta. 

Við komum til með að túlka þögn sama og samþykki, þannig að þeir sem eru mótfallnir endilega láta í sér heyra. Þeir sem eru í Eyjum um versló geta líka látið okkur vita persónulega!! ;) Sjáumst í dalnum!

Lára og Ragnheiður

» 9 hafa sagt sína skoðun

28.12.2007 20:43:35 / trip07

Enn fleiri upplýsingar!

Sælt veri fólkið! Dreifðum miðum áðan á þá sem mættu á fundinn með eftirfarandi upplýsingum:

Útskriftarferð 200731. desember ’07 – 13. janúar ‘08 Mæting 31. des kl. 7.15 fyrir utan hjá FVA. Rútan fer fljótlega eftir það.

Hægt er að hafa samband í síma:

 8673802 (Ragnheiður)8680171(Lára)8497105(Agla)

Muna eftir vegabréfum, gjaldeyri (evrur og pund), greiðslukortum (pin númer), tryggingaskírteinum (ef eigið;) og farangri.  Upplýsingar um flugin sem við förum í eru eftirfarandi: 

Keflavík – London, 31. desember kl. 12.05 – lent kl. 15.15. Gist verður á hóteli í Kensington; Copthorne Tara Hotel.

London – Tenerife, 5. janúar kl. 15.25 – lent kl. 19.45. Gist verður á íbúðahóteli á Costa Adeja ströndinni; Los Bresos.

Tenerife – London, 12. janúar kl. 20.45 – lent kl. 00.55. Gist á flugvellinum yfir nótt.

London – Keflavík, 13. janúar kl. 08.00 – lent kl. 10.20.  Tekin verður rúta upp á Akranes. Áætluð heimkoma er kl. 13.00.

 

Mjög mikilvægt er að allir mæti á réttum tíma í rútuna!!! 07:15

Ef það eru einhverjar spurningar þá er það bara að hringja eða commenta!

-Lára Hólm-


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 22:44:50 / trip07

Oplysninger

Þar sem við erum nú að fara á erlenda grund þykir okkur við hæfi að slá um okkur á öðrum tungum.

Byrjum á því að óska ykkur gleðilegrar hátíðar!

Það verður fundur á morgun kl 18.00 í gamla tónó fyrir ofan lögguna og ríkið. Skyldumæting fyrir þá sem komast.

Núna á að vera búið að leggja inn á alla það sem þeir eiga inni, nema Róbert. Rætt verður um fjármál ferðarinnar og hvernig greiðslum háttaði og svo ferðahagi, hvenær flogið er o.s.frv.

Það eru ennþá einhverjir sem eiga eftir að borga rútugjaldið en það verður að greiðast á morgun. Hringja í 5854000 og gefa upp staðfestingarnúmerið.

Annars kemur þetta allt í ljós á morgun.

Dreifið boðskapnum.


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 20:26:53 / trip07

Rútugjald

Hæjhæj, vil minna alla á að hringja á morgun og borga rútugjaldið, 3800 kr.
Þetta er fyrir rútuferðunum til og frá flugvöllunum úti. Þetta virkar alveg eins og fyrri greiðslur.
Símanúmerið er 585-4000.
Bara 12 dagar í ferðina, kemur ný færsla inn fljótlega;Þ

-Lára Hólm-


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 17:49:57 / trip07

Reikningsnúmer!!

Jæja kids!

 Það eru einhverjir sem eru kannski farnir að sakna borgunar...

eins og t.d. 5000 kr staðfestingu, klósettpappír, jólapappír, gæslu á balli, krónuna eða eitthvað annað...

Látið okkur hafa reikningsnúmerin ykkar (sms - komment hér á síðunni - hringja) svo við getum klárað að borga þetta. Það er hellings vinna að millifæra þessa peninga á svona marga þannig að það væri fínt ef við fengjum að klára þetta svo við getum haldið gleðileg jól - án þess að þurfa að spá í þessum peningum.

 Við erum búnar að borga matinn á gamlársdag og dugaði sameiginlegi sjóðurinn fyrir því; það sem telst til sameiginlegs sjóðar er bingóið, siðbót, dagatölin, pulsupartý og ég held ég sé ekki að gleyma neinu.

 Það er allavega gleðiefni! Fylgisti vel með hér á síðunni. Upplýsingar um rútukaup birtast von bráðar. Getið reiknað með kostnaði þar.

 Veriði bless og smá stress!!

- Ragnheiður

Símanúmer:
Agla: 8497105
Lára: 8680171
Ragnheiður: 8673802


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 15:29:40 / trip07

Greiðsla

Sæl. heyrðu ágætt að taka það fram kanski að þið verðið að vera búin að greiða ferðina að fullu fyrir föstudaginn 30. nóv, semsagt núna á föstudaginn. Þá er mánuður í brottför. Sjibbí

 Kv. Stjórnendur


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 22:50:18 / trip07

reikningsnúmer

Þeir sem hafa greitt þá upphæð sem þurfti að greiða fyrir jóla og klóa geta búist við því að fá þann hluta peningsins sem þeir áttu að fá endurgreitt. Ef þið skiljið eftir reikningsnúmerið ykkar hérna á síðunni eða látið okkur vita með sms eða einhvern veginn þá fáiði endurgreitt á morgun. En þó aðeins þeir sem eru búnir að greiða allt sem þeir þurftu að greiða.

Við munum einnig láta lista ganga á fundi eftir umsjón á morgun þar sem þið getið skrifað reikningsnúmerið. :)

ÞIÐ VERÐIÐ AÐ VERA BÚIN AÐ STAÐFESTA FERÐINA YKKAR Á MORGUN FYRIR KL 17.00 - leiðbeiningar hérna fyrir neðan. :)

Blelli ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 12:24:06 / trip07

Staðfestingarnúmer

Á fundinum í gær var dreift staðfestingarnúmerum á liðið sem mætti. Þeir sem mættu ekki verða að koma til okkar og fá staðfestingarnúmerið sitt.

En þið borgið staðfestingargjaldið þannig að þið hringið í Úrval Útsýn 5854000. Þið segist ætla að borga staðfestingargjald inn á ferðina og að númerið ykkar sé t.d. 59021. FYRIR MIÐVIKUDAG!!

Best væri fyrir ykkur upp á ferðatryggingu að borga með visakorti. En auðvitað ráðið þið því.

Ef þið viljið fá þann pening sem þið eruð búin að safna ykkur - verða allir að vera búnir að skila öllum peningum (jólapappír, klósettpappir) sem þeir eiga eftir að skila inn. Þessum peningum verður að vera búið að skila á morgun ef þið viljið fá þann pening sem þið eigið inni borgaðan á miðvikudaginn.

Allavega... ef það er eitthvað óljóst, ykkur vantar staðfestingarnúmer eða eitthvað svoleiðis þá verðiði að hafa samband við okkur.

Blelli!

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 10:39:19 / trip07

Fundur í kvöld!


Fundur verður í kvöld kl 21:00 í Hvíta húsinu!
Mjög mikilvægt er að allir mæti þar sem að segja á frá greiðslum ferðarinnar!

Þeir sem eru ekki búnir að skila inn peningum fyrir klósettpappír og eða jólapappír verða að gera það sem fyrst. Getið komið með peninginn í kvöld á fundinn eða lagt inná reikninginn okkar.

Reikningsnúmerið 1104-15-550134, og kt. 290988-3739

Þeir sem sjá sér ekki fært um að mæta á fundinn er beðnir um að láta okkur vita, þar sem þeir þurfa að fá bókunarnúmerið sitt á ferðinni.

Kveðja Lára Hólm (868-0171)

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 13:25:07 / trip07

Herbergin

Sælir kids.... Heyrðu þá er komið að því að raða í herbergin...

Það verða 2 saman í herbergi útí London, örugglega 3 saman í einu, veit ekki alveg.

Svo eru þrír saman í herbergi útá Tenerife...

Þið megið endilega skrifa hér í komment með hverjum þið viljið vera í herbergi.. svo eftir helgi, á sunnudaginn líklegst, raða ég þeim sem ekki hafa kommentað neitt á herbergi...

Jeijj..

 

Heyrðu vildi svo nefna það hér að við í "stjórninni" erum aaaafskaplega ósáttar með siðbótina þessa vikuna.. ég sá ekkert til ykkar strákar, eini sem var í peysu var Magnús... þetta er drullulélegt verð ég að segja...  við vorum alltaf að minna ykkur á þetta....

En þeir sem eru í siðbót næst, ættu að sjá það í linknum hér við hliðiná... 

Byrjið að raða ykkur niður á herbergi:)

 

Kveðja

Agla 


» 10 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 20:05:06 / trip07

Great Info

Frábærar fréttir hef ég að færa ykkur krakkar....

Þetta er komið, það er búið að bóka allt fyrir okkur og komið á hreint með verðið og fleira...

Við fljúgum til London, Gatwick, 31. des á hádegi, gistum þar í fimm nætur á hóteli sem heitir Copthorne Tara, og er Í Kensington. 5.jan fljúgum við til Tenerife um 3 leytið og gistum þar í viku á hóteli sem heitir Los Brezos (sjáið færsluna hér fyrir neðan með linknum á hótelið;) 

þetta er linkurinn á hótelið í London; http://www.millenniumhotels.co.uk/copthornetarakensington/index.html

Heildarverðið er; 89.900kr. innifalið í þessu er flug, gisting í 5 nætur í London, með morgunmati og 7 nætur á Tenerife, plús flugvallarskattar.

Fyrir utan þetta verð þurfum við að greiða 2000kr fyrir rútu frá flugvelli og frá hóteli í London, og 1800kr fyrir sama á Tene.

 

Við þurfum að vera búin að greiða ferðina að fullu mánuð fyrir brottför, semsagt 31.nóvember.

En jæja hvernig lýst ykkur svo á þetta.??.

munið svo að fylgjast með hverjir eru í siðbót.

Later

Agla 


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 18:38:49 / trip07

Gæsla á ballinu á mrgn, 2.nóv.

 

Sælir krakkar, takk fyrir síðast, þeir sem vöru í vörutalningu.

En þeir sem verða í gæslu eru eftirtaldir;

Skúli

Örnólfur

Arnar I.

Kristján Már

Gummi Ingi

Gummi Páll 

Inga

Guðný

Þið sjáið um gæslu á ballinu og mjög líklegast að koma síðustu gosdósunum út, verða seldar á 150kr eða 100kr stk. sjáum bara til.

Ef það er einhver sem vill ekki vera í gæslu þá er ég með einn varamann á snærunum.

Látið mig vita í síma: 8497105

Later

Agla


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 18:17:56 / trip07

Vörutalning í Krónunni

Vörutalningunni verður skipt í 2 hópa. Fyrri og seinni.

Þeir sem verði í fyrri eru og þeir eiga að mæta kl 19.00 - 04.00

  1. Agla
  2. Kári
  3. Gísli
  4. Rúnar
  5. Andri Már
  6. Salvar
  7. Róbert
  8. Bjarni Már
  9. Hinrik
  10. Guðmundur Ásgeir
  11. Hörður
  12. Ketill Gauti
  13. Arnar Grétarsson
  14. Magnús
  15. Matti
  16. Valdi


Þeir sem verða í seinni eru, og eiga að mæta kl 00.00 - 10.00:

  1. Ragnheiður
  2. Guðný
  3. Inga
  4. Elín
  5. Nanna
  6. Lára
  7. Siggi
  8. Viðar
  9. Ársæl
  10. Gulli
  11. Róbert

Ef þið komist ekki af einhverjum ástæðum þá VERÐIÐI að fá einhvern til þess að koma fyrir ykkur og láta okkur vita. En annars eru forföll EKKI í boði!!

Lifi djammið ! :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 18:34:56 / trip07

Upplýsingapakki

Jæja. Hérna koma smá upplýsingar um ferðina og fjáraflanir.

Við fljúgum út 29. desember til London með morgunflugi (kl 8.30). Farið verður með rútu út á flugvöll. Í London gistum við á hótelinu Royal National (miðsvæðis í London) - www.imperialhotels.co.uk.

5. janúar fljúgum við frá London til Tenerife og lendum þar um 20 leytið. Á Tenerife verðum við á íbúðahótelinu Los Brezos. Við fljúgum 12. janúar frá Tenerife til London og lendum í London um 2 leytið um nóttina (eiginlega orðinn 13. janúar). Við eigum svo hádegisflug frá London til Íslands 13. janúar og ákveðið var á fundinum að við myndum bara vera á flugvellinum á milli - ekkert vera að fara á hótel.

-------

En yfir í annað. Það gengur framar vonum að safna vinningum í Bingóið góða. Áætlað er að hafa Bingóið fimmtudaginn 31. október. Það þurfa einhverjir að vinna á Bingóinu en nánar um það seinna.

Það eiga allir sem ætluðu að selja jólapappír að vera búnir að fá hann. Pakkinn er seldur á 1500 kr. Sá sem fékk 11 pakkningar á vinsamlegast að láta Láru vita í síma 8680171.

Á næstu helgi verður vörutalning í Krónunni. Hún hefst eftir lokun á laugardag og stendur fram yfir miðnætti aðfaranótt sunnudags. Við þurfum helst að fá 30 manns til þess að mæta - 20 og eitthvað hafa skráð sig og endilega þeir sem vilja vera með skrái sig í komment. Listinn yfir þá sem ætla að taka þátt er hérna til hliðar.

Það stendur til boða að selja lakkrís á 500 kr kílóið. Listi yfir þá sem ætla að vera með er hérna til hliðar líka, en þeir sem ætla að vera með meiga ennþá skrá sig í komment.

...

Fleiri var það ekki í bili. Endilega kommentið og skilgreinið ef þið viljið vera með og láta bæta ykkur á listana.

Kv. Ragga Fri


» 14 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 18:15:54 / trip07

Fundur

Jæja!

Nú er að komast mynd á þetta allt saman. Aftur fundur á föstudegi, ha?

En allavega verður fundur á morgun uppi í Hvíta Húsi kl 18.00 um ferðina. Það er skyldumæting fyrir alla!!! En öll forföll þarf að tilkynna til annað hvort mín, Láru eða Öglu. Símanúmerin eru hérna fyrir neðan. :)

Djammið lifir!

Kv. Lonerife Nefndin.


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill